Erum við að tala um þynnku eða hvað?? Shiiiiiiiiiiiit!
Gærkvöldið var bara SNILLD!
Ég og Bryndís skelltum okkur í innflutningspartý hjá Henrý....og þar sem við vorum svo gáfaðar að gleymað kaupa innflutningsgjöf ætluðum bið að fara á næstu Essó og kaupa klósettpappír handa honum....ég meina, hver þarf ekki sollis í búið ? hehehe;) Þetta var bara hin fínasta íbúð hja kjellinum...og var bara tekið gítarstemmarinn á etta og svo var auddað það skemmtilega.....raðað smarties eftir litum....DON´T ASK!!!! hahaha :D
Svo var bara stefnan sett á Hverfis að hitta alla þar og svo vorum við bara þar allt kvöldið því við vorum ekkert að nenna að fara út í þennan kulda! Rafmagnið var nú samt e-ð leiðinlegt og fór af nokkrum sinnum en hver lætur það stoppa sig?? :D
Fullt af liði í bænum....hitti m.a flest alla HK strákana sem voru veeeeel góðir á því og FH stelpurnar líka......geeeeeðveitk stuð!
Heyrst hefur að það voru nokkrir strákar sem nýttu sér rafmagnsleysið inn á klósetti!! SAY NO MORE!!! hahaha ;)
Jæja þynnkan kallar
22. október 2006 klukkan 19:32
Líney og Bryndís 6 athugasemdir
Skrifaði undir félagsskipti hja HSÍ í dag og er að bíða eftir FH samningnum!
Fékk fyrstu FH treyjuna mína í dag og fékk ég treyju númer 4 ...hef alltaf verið númer 9 svo þetta verður e-ð skrítið!
Kom svo heim og mátaði treyjuna....og Damn it...looking good...hehehe ....eða á ég að segja SJOKK!! Ég hef alltaf verið Rauð og Hvít!! Hvað er ég búnað koma mér í ??
Nei segi sonna....þetta verður án efa voða fínt!
Svo bara djammerí á morgun....GOURME!!!
Líney FH-ingur
21. október 2006 klukkan 01:43
Líney og Bryndís 3 athugasemdir
shiiit hvað það er mikið fjör alltaf í essari blessaðri vinnu en það er nú bara gott.. Held meiraðsegja að Líney sé að koma attur þá minnkar nú ekki fjörið En allavega fór ég í jarðaför í gær til hennar langömmu og shiii hvað etta var allt fallegt grét og grét og grét bara eins og flestir En hún var bara komin á aldur og byrjuð að gleyma frekar miklu og hún vissi sjálf að etta myndi farað gerast en svona er etta blessaða líf þetta er það eina sem maður veit pottþétt að gerist einhverntímann á lífsleiðinni.. Svo var líka ein fimm mánaða gömul stelpa sem ég þekki sem dó líka á sunnudaginn. var bara dáin í rúminu þegar foreldrar hennar ætluðu að gá að henni jeminn ég veit ekki hvert ég myndi fara ef e-h svona myndi henda mig
En nóg um það mig er alvarlega mikið farið að hlakka til helgarinnar hún verður súper get ekki beðið
þangað til næst Bryndís
18. október 2006 klukkan 23:42
Líney og Bryndís 4 athugasemdir
jæja hvað segiði þá....Bryndis alveg að meikaða í blogginu....byrjar vel...hehehe
Ég er sonna mikið að spá í það þessa dagana hvort að ég eigi að hætta í HÍ bara núna því að ég er nátttla að fara í lögguskólann í janúar og er ekkert viss um hvort ég eigi eftir að klára þetta seinna....er heldur ekkert að fíla mig í essu....ekki það skemmtilegasta sem ég hef gert allavega! Mundi þá örugglega bara vinna á leikskólanum þangað til í janúar....eða held það allavega! hvað mundu þið gera???
Mikið spennandi búið að gerast hjá mér allavega....lögguskólinn og fleirra...margt fleirra! thíhíhí
Svo var hringt í mig í gær frá keflavíkur flugvelli og mer boðin vinna sem lögga þar þangað til að skólinn byrjar í jan.....verð að viðurkenna að það var spennandi en er soldið hrædd við það því að ég verð þá náttla ekkert búnað læra hvernig á að bregðast við í hinum ýmsu aðstæðum..læri það náttla allt í skolanum! Eða þið skiljið!
Svo styttist óðum í það að marr verði LOKSINs 20 ára ...og bið ég alla að taka laugardaginn 18.nóv frá því að þá ætlar mín að halda upp á herlegheitin! Fáið svo sms eða símtal um það þegar nær dregur!
En já..helgin var bara mjööög róleg...hef ekki haft sonna tólega helgi leeeeeengi! Bara video á föstudaginn, út að borða og bíó á laugardaginn og búðar ráp og video í gær...voða rólegt og nice hja minni!
Var verið að hreinsa tölvuna mina ut af því að það var vírus í henni og það bara datt allur andskotin ut ut henni...eins og t.d ritgerð sem ég á að endurskila á fimmtudaginn! ...Ég er sko brjáluð...brjáluð segi ég!!!
En já..lítið um að vera á þessari síðu eins og er því við erum nu ekki bunar að vera duglegar að tilkynna hana...en það kemur!
Þangar til næst...
Líney Out
16. október 2006 klukkan 20:50
Líney og Bryndís 2 athugasemdir
Shiiiiiiit var búin að skrifa þvílikt langa færslu en hún gufaði öll upp ég er brjáluð núna!!! Þannig nenni því ekki núna geri það seinna..
En næsta helgi verður djamm eða innflutningsparty hjá Henrý er þaggi góða mín? svo er e-h fuck rugl með essa kalla en jæja etta er nú sonna eilla fyrsta skiptið hjá mér að blogga þannig kannski ekki skrítið að ég sé að klúðra essu öllu.. ;)
16. október 2006 klukkan 02:32
Líney og Bryndís 1 athugasemd
Jæja þá erum við vinkonurnar bara að fara að spreita okkur á essu nýja bloggi! Ég er nú vanur bloggari mikill og góður...veit nu ekki hvort ég geti sagt það sama um hana Bryndísi...en ég get lofað ykkur að hún kemur sterk inn!
Jæja..ætlaði barað hafa þetta sonna inngangs orð ....
Þangað til næst... Verið hress, Ekkert Stress og Bless
Líney Besta
13. október 2006 klukkan 22:31
Líney og Bryndís 2 athugasemdir